Fast númeraval
Veldu
Valmynd
>
Samskipti
>
Tengiliðir
>
Valkostir
>
SIM-tengiliðir
>
Í föstu númeravali
.
Með föstu númeravali er hægt að takmarka símtöl úr tækinu
þannig að aðeins er hægt að hringja í ákveðin símanúmer.
Það styðja ekki öll SIM-kort fast númeraval. Þjónustuveitan
gefur nánari upplýsingar.
1. Til að takmarka símtöl úr tækinu velurðu
Valkostir
>
Nýr SIM-tengiliður
og slærð nafn og símanúmer
tengiliðarins inn í listann yfir númer sem hringja má í, eða
velur
Bæta í úr Tengiliðum
til að afrita tengiliðinn úr
Tengiliðir. Til að takmarka símtöl eftir landsnúmeri skaltu
færa landsnúmerið inn í númeralistann. Aðeins er hægt
að hringja í símanúmer sem byrja á þessu landsnúmeri.
2. Veldu
Valkostir
>
Virkja fast nr.val
. Nauðsynlegt er að
hafa PIN2-númer til að kveikja og slökkva á föstu
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
109
númeravali og breyta tengiliðum í föstu númeravali.
Númerið fæst hjá þjónustuveitunni. Veldu
Valkostir
>
Óvirkja fast nr.val
til að slökkva á þjónustunni.
Ábending: Til að geta sent textaskilaboð til SIM-
tengiliða í föstu númeravali þarftu einnig að bæta
númeri skilaboðamiðstöðvarinnar við listann.