
Opnunarlyklar
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Opn.lyklar
.
Sumar skrár, eins og mynda-, tónlistar- eða
hreyfimyndaskrár, eru varðar með stafrænum
notkunarréttindum. Opnunarlyklarnir fyrir slíkar skrár geta
leyft eða takmarkað notkun þeirra. Til dæmis er hugsanlegt
að með sumum opnunarlyklum sé aðeins hægt að hlusta á
tiltekið lag í ákveðinn fjölda skipta. Meðan á spilun stendur
er hægt að spóla hratt áfram, aftur á bak eða setja lagið í bið,
en þegar spilun þess er stöðvuð telst það hins vegar hafa verið
notað einu sinni.