Nokia E71 - Nota opnunarlykla

background image

Nota opnunarlykla

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir

opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota

öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Ovi Suite til að taka

öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt

opnunarlyklum þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig

gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í tækinu

skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það

takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu SIM-korti

og aðeins er hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið

er í tækinu.

Til að skoða opnunarlykla þína eftir gerð skaltu velja

Gildir

lyklar

,

Ógildir lyklar

eða

Lyklar án notk.

.

Til að skoða upplýsingar um lykla velurðu

Valkostir

>

Upplýsingar lykils

.

Fyrir hverja mynd- og hljóðskrá eru birtar eftirfarandi

upplýsingar:

Staða

— Staðan er

Opnunarlykill í gildi

,

Opnunarlykill

útrunninn

eða

Lykillinn er ekki enn gildur

.

Sending efnis

Leyft

merkir að þú getur sent skrána í

annað tæki.

Ekki leyft

merkir að þú getir ekki sent skrána

í annað tæki.

Efni í síma

merkir að ef skráin er geymd í tækinu

er slóð hennar birt.

Nei

merkir að viðkomandi skrá er ekki

geymd í tækinu.

Til að virkja lykil ferðu í aðalskjá Opnunarlykla og velur

Ógildir lyklar

>

Valkostir

>

Sækja opnunarlykil

.

Samþykktu að koma á nettengingu og verður þér þá beint á

vefsvæði þar sem hægt er að kaupa heimildir fyrir skrána.
Til að fjarlægja notkunarheimildir opnarðu flipann fyrir gilda

lykla eða flipann fyrir lykla sem ekki eru í notkun, flettir að

viðkomandi skrá og velur

Valkostir

>

Eyða

. Ef fleiri en ein

notkunarheimild tengist sömu skrá verður öllum

heimildunum eytt.
Á hóplyklaskjánum eru sýndar allar skrár sem tengjast

hópheimild. Ef mörgum hljóð- eða myndskrám hefur verið

hlaðið niður með sömu heimild eru þær allar birtar á þessum

skjá. Hægt er að opna hópskjáinn í flipanum fyrir gilda lykla

eða ógilda lykla. Til þess að opna þessar skrár skaltu opna

hópheimildamöppuna.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

114