Nokia E71 - Java-öryggisstillingar

background image

Java-öryggisstillingar

Til að tilgreina öryggisstillingar Java-forrits velurðu

Valkostir

>

Stillingar

.

Hægt er að velja hvaða aðgerðum Java-forritið hefur aðgang

að. Aðgerðavalkostirnir sem hægt er að velja velta á léni

hugbúnaðarpakkans.

Aðgangsstaður

— Veldu aðgangsstað sem forritið mun

nota þegar það tengist við netið.

Símkerfisaðgangur

— Leyfðu forritinu að koma á

gagnatengingu við símkerfið.

Skilaboð

— Leyfðu forritinu að senda skilaboð.

Sjálfvirk ræsing

— Leyfðu forritinu að ræsa sig sjálfvirkt.

Tengimöguleikar

— Leyfðu forritinu að virkja

gagnatengingar, líkt og Bluetooth-tengingar.

Margmiðlun

— Leyfðu forritinu að nota

margmiðlunarbúnað tækisins.

Lesa gögn notanda

— Leyfðu forritinu að skoða

dagbókarfærslur, tengiliði eða önnur persónuleg gögn.

Breyta notandagögnum

— Leyfðu forritinu að bæta inn

persónulegum gögnum, t.d. færslum í Tengiliði.

Staðsetning

— Leyfðu forritinu að nota

staðsetningargögn tækisins.

Leiðarmerki

— Leyfðu forritinu að nota leiðarmerki

tækisins.

Hægt er að tilgreina hvernig Java-forrit biður um staðfestingu

á aðgangi að aðgerðum tækisins. Veldu einhvern af

eftirfarandi valkostum:

Spyrja alltaf

— Til að Java-forritið biðji þig um

staðfestingu í hvert sinn sem það notar valkostinn.

Í fyrsta skiptið

— Til að Java-forritið biðji aðeins um

staðfestingu í fyrsta skiptið sem það notar valkostinn.

Alltaf leyft

— Til að leyfa Java-forritinu að nota valkostinn

án staðfestingar. Öryggisstillingarnar hjálpa til við að

vernda tækið gegn skaðlegum Java-forritum sem gætu

notað aðgerðir þess án þinnar heimildar. Veldu aðeins

valkostinn

Alltaf leyft

ef þú veist hver framleiðandinn er

og ert viss um áreiðanleika forritsins.

Ekki leyft

— Til að hindra að Java-forritið noti valkostinn.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

113