Uppsetning forrita
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og
annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java
Verified™.
Veldu
Sækja forrit
til að sækja og setja upp hugbúnað af
vefnum. Veldu því næst forrit og svo
Valkostir
>
Setja
upp
.
Til að skoða upplýsingar um uppsettan hugbúnaðarpakka
skaltu velja forritið og
Valkostir
>
Skoða frekari uppl.
.
Til að skoða uppsetningarskrána velurðu
Valkostir
>
Skoða
notk.skrá
. Listi sýnir hvaða hugbúnaður hefur verið settur
upp eða eytt út ásamt dagsetningu aðgerðanna. Ef vart
verður við truflanir í tækinu eftir að hugbúnaðarpakki hefur
verið settur upp er hægt að nota listann til að finna
hugbúnaðarpakkann sem veldur trufluninni. Upplýsingarnar
á listanum geta einnig hjálpað til við að staðsetja truflanir af
völdum ósamhæfra hugbúnaðarpakka.
Til að fjarlægja hugbúnað velurðu
Valkostir
>
Fjarlægja
.
Þegar hugbúnaður er fjarlægður er aðeins hægt að setja hann
upp aftur með því að nota upprunalegu hugbúnaðarskrána
eða með því að setja upp afrit sem inniheldur allan
hugbúnaðarpakkann sem hefur verið fjarlægður. Ef
hugbúnaðarpakka er eytt er ekki víst að hægt sé að opna
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
112
skrár sem voru búnar til með honum. Ef hugbúnaðarpakkinn
sem verið er að fjarlægja hefur áhrif á annan
hugbúnaðarpakka gæti sá pakki hætt að virka. Þú finnur
nánari upplýsingar í leiðbeiningunum sem fylgja með
hugbúnaðarpökkum.