VPN f. fars.
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
VPN
.
Nokia VPN-netforrit fyrir farsíma (virtual private network)
kemur á öruggri tengingu við samhæft innra net fyrirtækis
og þjónustu, eins og tölvupóst. Tækið þitt tengist internetinu
með farsímakerfinu og tengist þannig VPN-gátt sem veitir
aðgang að samhæfu innra neti fyrirtækisins. VPN-forritið
notar IPSec-tækni (IP Security). IPSec er rammi opinna staðla
til að tryggja örugg gagnaskipti yfir IP-net.
VPN-stefnur skilgreina aðferðina sem VPN-forritið og VPN-
gáttin nota til að sannvotta hvort annað, og
dulkóðunaralgrímin sem þau nota til að tryggja leynda
gagnanna. Fáðu frekari upplýsingar um VPN-stefnu fyrirtækis
þíns í upplýsingatæknideildinni.
Til að setja upp og stilla VPN-forritið, vottorð og stefnur skaltu
hafa samband við stjórnanda upplýsingatækni í fyrirtækinu.