Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera
áskrifendur þjónustu fyrir þráðlausa síma. Ekki er hægt að
nota alla þessa valkosti í öllum símkerfum. Fyrir suma
eiginleika kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka
skráningu hjá þjónustuveitunni. Sérþjónusta felur í sér
sendingu gagna. Fáðu upplýsingar hjá þjónustuveitu þinni
um gjöld á heimaneti þínu og þegar reiki er notað á öðrum
netum. Þú getur fengið upplýsingar um gjöld hjá
þjónustuveitunni. Sum netkerfi geta verið með
takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota
tiltekna eiginleika tækisins og krefjast netþjónustu á borð við
stuðning við tiltekna tækni eins og WAP 2.0 samskiptareglur
(HTTP og SSL) sem fara eftir TCP/IP samskiptareglum og
ýmsum sérstöfum í tungumálum.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir
væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er
birtast þær ekki í valmynd tækisins. Í tækinu gætu atriði
einnig verið sérsniðin, s.s. heiti á valmyndum, skipanir og
tákn.