Úrræðaleit
Á þjónustusíðunum á vefsíðu Nokia má sjá svör við algengum
spurningum um tækið.
Spurning: Hvert er læsingar-, PIN- eða PUK-
númerið mitt?
Svar: Sjálfgilt númer fyrir læsingu er 12345. Hafðu samband
við söluaðilann ef þú týnir eða gleymir læsingarnúmerinu. Ef
þú gleymir eða glatar PIN- eða PUK-númeri, eða ef þú hefur
ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa samband við
þjónustuveituna.
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e.
svarar ekki?
Svar: Haltu heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu á
bakktakkann til að loka forritinu.
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
Ýttu á takkann T til að stilla fókusinn á myndefnið áður en
mynd er tekin.
Spurning: Hvers vegna eru alltaf upplitaðir eða
skærir punktar á skjánum þegar ég kveiki á
tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum
skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort
stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla heldur
eðlilegan hlut.
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns
þegar ég nota Bluetooth?
Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt
sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu einnig úr skugga
um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé ekki meiri en 10
metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir á
milli þeirra.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-
tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið
tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth í tækinu
þínu. Veldu
Valmynd
>
Tenging
>
Bluetooth
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð WLAN-
aðgangsstað þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?
Svar: Gakktu úr skugga um að sniðið án tengingar sé ekki í
notkun í tækinu.
Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða. Þú
getur aðeins fengið aðgang að netkerfum sem nota falinn
SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til WLAN-
aðgangsstað í Nokia-tækinu þínu.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
135
Gakktu úr skugga um að WLAN-aðgangsstaðurinn sé ekki á
rásum 12-13 þar sem ekki er hægt að tengja þær við hann.
Spurning: Hvernig slekk ég á WLAN í Nokia tækinu
mínu?
Svar: Tengingin við þráðlausa staðarnetið rofnar þegar þú ert
ekki að reyna að tengjast eða ert ekki með tengingu við
annan aðgangsstað eða að leita að tiltæku netkerfi. Til að
draga enn frekar úr rafhlöðueyðslu er hægt að stilla Nokia-
tækið þannig að það leiti ekki eða leiti sjaldnar að tiltækum
netkerfum í bakgrunni. Það slokknar á þráðlausa
staðarnetinu milli þess sem leit fer fram í bakgrunni.
Slökkt er á bakgrunnsleit með því að velja
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Þráðl. staðarnet
>
Sýna vísi staðarneta
>
Aldrei
. Áfram er hægt að leita
handvirkt að tiltækum WLAN og tengjast þeim eins og
vanalega.
Til að auka tíma bakgrunnsleitar velurðu
Sýna vísi
staðarneta
>
Já
og svo bilið
Leitað að staðarnetum
.
Spurning: Af hverju get ég ekki farið á vefinn þrátt
fyrir að WLAN-tenging virki og IP-stillingarnar séu
réttar?
Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir tilgreind réttar HTTP/
HTTPS proxy-stillingar í frekari stillingum WLAN-
aðgangsstaðarins.
Spurning: Hvernig kanna ég gæði
undirskriftarinnar í WLAN-tengingunni minni?
Veldu
Valmynd
>
Tenging
>
Stj. teng.
>
Virkar
gagnatengingar
>
Valkostir
>
Upplýsingar
. Ef
sendigæðin eru lítil eða miðlungsgóð gætirðu lent í
vandræðum með að tengjast. Reyndu aftur nær
aðgangsstaðnum.
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með
öryggisstillinguna?
Svar: Gakktu úr skugga um að öryggisstillingin sé rétt og sú
sama og netkerfið notar. Til að sjá hvaða öryggisstillingu
netkerfið notar velurðu
Valmynd
>
Tenging
>
Stj.
teng.
>
Virkar gagnatengingar
>
Valkostir
>
Upplýsingar
.
Kannaðu einnig eftirfarandi: þú notar rétta WPA-stillingu
(fordeildur lykill eða EAP), þú hefur slökkt á öllum EAP-
gerðum sem ekki eru nauðsynlegar og allar EAP-stillingar eru
réttar (lykilorð, notendanafn, vottorð).
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið fyrir
skilaboðin mín?
Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer,
vistfang né tölvupóstfang. Veldu
Valmynd
>
Samskipti
>
Tengiliðir
og breyttu tengiliðaspjaldinu.
Spurning: Textinn Sæki skilaboð birtist í stutta
stund. Hvað er að gerast
Svar: Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá
skilaboðastöðinni. Þessi texti birtist ef þú hefur valið
Valmynd
>
Samskipti
>
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðl.
>
Alltaf sjálfvirk
. Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir
margmiðlunarboð séu rétt valdar og að símanúmer og
vefföng séu rétt.
Sjá „Stillingar
margmiðlunarskilaboða“, bls. 59.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
136
Spurning: Hvernig get ég slitið gagnatengingu
þegar tækið kemur henni alltaf á aftur?
Svar: Tækið kann að vera að reyna að sækja
margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni. Til að láta
tækið hætta að koma á gagnatengingu ýtirðu á
Valmynd
>
Samskipti
>
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðl.
>
Handvirkt
val
til að láta skilaboðamiðstöðina vista skilaboðin þannig
að þú getir sótt þau síðar, eða
Óvirk
til að hunsa öll móttekin
margmiðlunarskilaboð. Ef þú velur
Handvirkt val
færðu
tilkynningu um að ný margmiðlunarskilaboð bíði þín í
skilaboðamiðstöð margmiðlunarboða. Ef þú velur
Óvirk
kemur tækið aldrei á tengingu við farsímakerfið vegna
margmiðlunarskilaboða.
Til að láta tækið aðeins nota pakkagagnatengingu ef þú ræsir
forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar ýtirðu á
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
Ef þetta hjálpar ekki skaltu slökkva á tækinu og kveikja á því
aftur.
Spurning: Hvernig spara ég rafhlöðuna?
Svar: Margar aðgerðir tækisins auka orkuþörf og draga úr
líftíma rafhlöðunnar. Til að spara rafhlöðuna skaltu gera
eftirfarandi:
• Slökktu á Bluetooth þegar þú notar það ekki.
• Stöðvaðu bakgrunnsleit að WLAN. Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Þráðl.
staðarnet
>
Sýna vísi staðarneta
>
Aldrei
. Áfram er
hægt að leita handvirkt að tiltækum WLAN og tengjast
þeim eins og vanalega.
• Stilltu tækið þannig að það noti aðeins
pakkagagnatengingu ef forrit eða aðgerð sem þarf á henni
að halda er ræst. Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
• Lokaðu á sjálfvirkt niðurhal nýrra korta í kortaforritinu.
Veldu
Valmynd
>
GPS
>
Kort
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Internet
>
Tenging
>
Aftengt
.
• Breyttu tímanum sem líður þar til slökkt er á
baklýsingunni. Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Sérstillingar
>
Skjár
>
Tímamörk ljósa
.
• Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota. Haltu
heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu á
bakktakkann til að loka forritinu.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
137