Öryggi tenginga
Ef öryggisvísirinn ( ) birtist á skjánum meðan tenging er virk
eru gagnasendingar milli tækisins og internetgáttarinnar
eða miðlarans dulkóðaðar. Öryggistáknið sýnir ekki að
gagnasendingin milli gáttarinnar og efnisþjónsins (eða
staðarins þar sem umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg.
Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og
efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna þjónustu,
t.d. bankaþjónustu. Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki
staðfestur eða ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitu.