Unnið með Flash-skrár
Settu minniskort í tækið til að bæta við flash-spilarann.
Flash-skrám er eytt með því að fletta að þeim og ýta á
skruntakkann.
Til að senda flash-skrá til samhæfra tækja velurðu
Valkostir
>
Senda
. Höfundarréttarvörn getur komið í veg
fyrir að hægt sé að senda ákveðnar Flash-skrár.
Til að skipta á milli Flash-skránna í minni tækisins eða á
minniskortinu skaltu fletta að viðkomandi flipa.
Til að breyta gæðum Flash-skrár velurðu
Valkostir
>
Gæði
á meðan verið er að spila skrána. Ef þú velur
Há
getur spilun
tiltekinna flash-skráa virst ójöfn og hæg sökum upphaflegra
stillinga. Breyttu gæðastillingu slíkra skráa í
Venjuleg
eða
Lág
til að bæta spilunina.
Til að skipuleggja flash-skrárnar þínar velurðu
Valkostir
>
Skipuleggja
.