Sími
Til að hringja og taka á móti símtölum verður að vera kveikt
á tækinu, gilt SIM-kort verður að vera í því og það verður að
vera staðsett innan þjónustusvæðis farsímakerfisins.
Tækið þitt þarf að vera tengt við netsímaþjónustuna til að
hægt sé að hringja og svara netsímtölum. Til að tengjast
netsímaþjónustu verður tækið að ná sambandi við netkerfi,
s.s. WLAN-aðgangsstað.