
Myndsímtöl
Til að geta hringt myndsímtal þarftu að vera innan
þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Símafyrirtækið þitt eða
þjónustuveitan gefa upplýsingar um framboð og áskrift að
myndsímtölum. Þegar þú ert með símtal í gangi geturðu séð
rauntíma hreyfimynd milli þín og viðtakandans, ef hann er
með samhæfan farsíma. Viðtakandi þinn sér þá hreyfimynd
sem myndavélin í tækinu þínu tekur. Aðeins er hægt að koma
á myndsímtali við einn aðila í einu.