Fylgst með öllum samskiptum
Til að skoða öll símtöl, textaskilaboð eða gagnatengingar
sem tækið hefur skráð skaltu opna flipann með almennu
notkunarskránni.
Til að skoða nákvæmar upplýsingar um samskiptaferli skaltu
velja það og styðja á skruntakkann.
Ábending: Undiratburðir, líkt og skilaboð sem voru
send í fleiri en einum hluta eða pakkagagnatengingar,
eru skráðir sem einn samskiptaatburður. Tenging við
pósthólfið þitt, skilaboðastöð margmiðlunarboða eða
vefsíður eru sýndar sem pakkagagnatengingar.
Til að bæta símanúmeri úr samskiptaatburði við Tengiliði
velurðu
Valkostir
>
Vista í Tengiliðum
og velur að búa til
nýjan tengilið eða að bæta símanúmerinu við tengilið sem
þegar er til.
Til að afrita númerið, til dæmis til að líma það inn í
textaskilaboð, velurðu
Valkostir
>
Afrita númer
.
Til að skoða tiltekna gerð samskiptaatburðar, eða samskipti
við tiltekinn aðila, skaltu velja
Valkostir
>
Sía
og svo síuna
sem á að nota.
Veldu
Valkostir
>
Hreinsa notkun.skrá
til að eyða innihaldi
notkunarskrárinnar, teljurum nýlegra símtala og
skilatilkynningum skilaboða varanlega.