Skilaboð
Veldu
Valmynd
>
Samskipti
>
Skilaboð
.
Í Skilaboðum (sérþjónusta), geturðu sent og tekið við
textaskilaboðum, margmiðlunarskilaboðum,
hljóðskilaboðum og tölvupóstskeytum. Einnig er hægt að
taka við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa,
sérstökum skilaboðum sem innihalda gögn, og senda
þjónustuskipanir.
Áður en þú getur sent eða tekið á móti skilaboðum gætir þú
þurft að gera eftirfarandi:
• Settu gilt SIM-kort í tækið og vertu innan þjónustusvæðis.
• Gakktu úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð skilaboða
sem á að senda og að opnað hafi verið fyrir þau á SIM-
kortinu.
• Færðu inn stillingar fyrir internetaðgangsstað í tækinu.
Sjá
„Netaðgangsstaðir“, bls. 65.
• Færðu inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.
Sjá „Stillingar
pósthólfa“, bls. 60.
• Tilgreindu stillingar textaskilaboða á tækinu.
Sjá
„Stillingar textaskilaboða“, bls. 59.
• Tilgreindu stillingar textaskilaboða á tækinu.
Sjá
„Stillingar margmiðlunarskilaboða“, bls. 59.
Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-kortsins og
færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir skilaboð. Ef ekki
þarftu hugsanlega að færa stillingarnar inn handvirkt, eða
hafa samband við þjónustuveituna til að fá stillingarnar.