Stillingar textaskilaboða
Veldu
Valmynd
>
Samskipti
>
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
SMS
.
Veldu úr eftirfarandi:
•
Skilaboðamiðstöðvar
— Til að skoða þær
skilaboðamiðstöðvar sem hægt er að velja fyrir tækið, eða
til að búa til nýja.
•
Skb.miðstöð í notkun
— Veldu skilaboðamiðstöðina
sem þú vilt að sendi skilaboðin.
•
Umritun stafa
— Veldu
Minni stuðningur
til að
umbreyta stöfum sjálfkrafa yfir í annað kerfi þegar sá
möguleiki er fyrir hendi.
•
Fá tilkynningu
— Veldu
Já
ef þú vilt að símkerfið sendi
þér skilatilkynningar fyrir send skilaboð (sérþjónusta).
•
Gildistími skilaboða
— Veldu hversu lengi
skilaboðamiðstöðin reynir að senda skilaboðin þín ef
fyrsta sending þeirra mistekst (sérþjónusta). Ef ekki tekst
að ná í viðtakanda innan þessa tíma verður skilaboðunum
eytt úr skilaboðamiðstöðinni.
•
Skilaboð send sem
— Til að velja annað snið fyrir
skilaboðin, til dæmis
Texti
,
Fax
,
Boð
eða
Tölvupóstur
.
Breyttu þessum valkosti ekki nema þú sért viss um að
skilaboðamiðstöðin geti breytt textaskilaboðum í þessar
gerðir. Hafðu samband við þjónustuveituna þína.
•
Æskileg tenging
— Til að velja þann tengingarmáta sem
á að nota þegar textaskilaboð eru send úr tækinu.
•
Svar um sömu miðst.
— Veldu hvort þú vilt að
svarskilaboðin séu send um sama númer
textaskilaboðamiðstöðvar (sérþjónusta).
Stillingar