Tengst við ytra pósthólf
Tækið þitt sækir ekki sjálfkrafa tölvupóst sem sendur er til þín
heldur er hann geymdur í ytra pósthólfinu þínu. Til að geta
lesið tölvupóstinn þinn þarftu fyrst að tengjast ytra
pósthólfinu og velja svo tölvupóstinn sem þú vilt flytja yfir í
tækið þitt.
1. Til að hlaða tölvupósti niður í tækið og skoða hann án
tengingar skaltu velja pósthólfið í aðalskjá skilaboða.
Þegar tækið birtir spurninguna
Tengjast pósthólfi?
skaltu velja
Já
.
2. Sláðu inn notandanafn þitt og lykilorð ef beðið er um það.
3. Veldu
Valkostir
>
Sækja tölvupóst
>
Nýjan
til að
sækja nýjan tölvupóst sem þú hefur hvorki lesið né sótt
áður,
Valinn
til að sækja aðeins tölvupóst sem hefur verið
valinn í ytra pósthólfinu og
Allan
til að sækja allan þann
tölvupóst sem hefur ekki verið sóttur áður.
4. Til að vinna með tölvupóstinn þegar nettenging er ekki til
staðar og vinna við aðstæður þar sem gagnatenging er
ekki möguleg, skaltu velja
Valkostir
>
Aftengja
til að
tengjast við fjartengda pósthólfið. Allar breytingar sem þú
gerir í möppum í ytra pósthólfinu á meðan nettenging er
ekki til staðar eru framkvæmdar næst þegar þú tengist og
samstillir.