Öryggi tækis og SIM-korts
Til að breyta PIN-númerinu velurðu
Sími og SIM-kort
>
PIN-
númer
. Nýja númerið verður að vera 4 til 8 tölustafir. PIN-
númerið fylgir SIM-kortinu og tryggir að óviðkomandi geti
ekki notað það. Ef rangt PIN-númer er slegið inn þrisvar
sinnum í röð lokast númerið og opna verður það með PUK-
númeri áður en hægt er að nota SIM-kortið aftur.
Til að læsa takkaborðinu sjálfkrafa eftir tiltekinn tíma velurðu
Sími og SIM-kort
>
Sjálfvirk læsing takka
.
Til að stilla eftir hversu langan tíma tækið læsist sjálfkrafa,
þannig að aðeins er hægt að nota það ef réttur læsingarkóði
er sleginn inn, velurðu
Sími og SIM-kort
>
Sjálfv.
læsingartími síma
. Sláðu inn tímann í mínútum eða veldu
Enginn
til að gera valkostinn óvirkan. Þegar tækið er læst er
áfram hægt að svara innhringingum og hugsanlega er áfram
hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í
það.
Til að velja nýjan læsingarkóða velurðu
Sími og SIM-kort
>
Númer fyrir læsingu
. Forstillta númerið er 12345. Sláðu inn
fyrra númerið og svo það nýja tvisvar. Nýi kóðinn má vera
4-255 stafa langt. Hægt er að nota bæði tölu- og bókstafi og
há- og lágstafi. Tækið lætur þig vita ef eitthvað er rangt við
númerið.