Nokia E71 - Nokia Ovi Suite

background image

Nokia Ovi Suite

Nokia Ovi Suite inniheldur ýmis forrit sem hægt er að setja

upp á samhæfri tölvu. Ovi Suite setur öll tiltæk forrit í

sérstakan glugga þar sem hægt er að opna þau. Ovi Suite

fylgir hugsanlega með minniskortinu ef það fylgir með

tækinu.
Hægt er að nota Ovi Suite til að samstilla tengiliði, dagbók,

verkefni og önnur minnisatriði milli tækisins og samhæfs

forrits í tölvu. Einnig er hægt að nota Ovi Suite til að flytja

bókamerki milli tækisins og samhæfra vafra og flytja myndir

og myndskeið milli tækisins og samhæfrar tölvu.
Skoðaðu stillingar samstillingar. Þær stillingar sem eru valdar

stjórna því hvort gagnaeyðing er hluti af hefðbundinni

samstillingu.

Til að nota Ovi Suite þarf tölvu sem keyrir á Microsoft

Windows XP (SP2 eða nýrri) eða Windows Vista (SP1 eða nýrri)

og er með USB-tengi eða Bluetooth-tengingu.
Það er ekki hægt að nota Ovi Suite á Apple Macintosh tölvum.
Nánari upplýsingar um Ovi Suite er að finna í hjálparforriti

símans eða á www.nokia.com/support.

Uppsetning Nokia Ovi Suite

1. Gakktu úr skugga um að minniskortið sé í Nokia E71.
2. Tengdu USB-snúruna. Tölvan finnur nýja tækið og setur

upp nauðsynlega rekla. Þetta getur tekið nokkrar

mínútur.

3. Veldu

Gagnaflutningur

sem USB-tengiaðferð í tækinu.

Tækið er merkt sem Removable Disk (laus diskur) í

möppuglugga Windows.

4. Opnaðu rót minniskortsins í möppuglugga Windows og

veldu uppsetninguna á Ovi Suite.

5. Þá hefst uppsetningin. Farðu eftir leiðbeiningunum.

Ábending: Ef þú vilt uppfæra Ovi Suite eða ef vandræði

eru í uppsetningu á Ovi Suite af minniskortinu skaltu

afrita uppsetningarskrána yfir á tölvuna og ræsa hana

þaðan.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

26