Venjulegur innsláttur texta
Tækið þitt er með lyklaborð. Hægt er að slá inn greinarmerki
með því að ýta á samsvarandi takka eða takkasamsetningu.
Ýttu á skiptitakkann til að skipta á milli há- og lágstafa. Á
skjánum gefa
,
og
til kynna hvort há- eða
lágstafur sé valinn.
Til að setja inn tölur eða stafi sem eru prentaðir efst á
takkana, heldurðu samsvarandi takka inni eða heldur
virknitakkanum inni og ýtir á viðkomandi takka.
Til að slá aðeins inn stafina sem eru prentaðir efst á takkana,
ýtirðu tvisvar á virknitakkann.
Ýttu á bakktakkann til að eyða staf. Haltu bakktakkanum inni
til að eyða mörgum stöfum í einu.
Ýttu á chr-takkann til að setja inn stafi sem eru ekki á
lyklaborðinu.
Texti er afritaður með því að halda skiptitakkanum inni og
fletta til að auðkenna orðið, setninguna eða textalínuna sem
þú vilt afrita. Ýttu á ctrl + c. Til að færa textann inn í skjal skaltu
fara á viðeigandi staðsetningu og ýta á ctrl + v.
Til að breyta tungumáli textans eða til að kveikja á flýtiritun
skaltu ýta á virknitakkann + bilslána, og velja úr tiltækum
valkostum.