Nokia E71 - Við þráðlaus staðarnet

background image

Við þráðlaus staðarnet

Til að nota þráðlaus staðarnet þarf að búa til netaðgangsstað.

Notaðu aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem krefjast tengingar

við internetið. Tengingu við þráðlaust staðarnet er komið á

þegar þú býrð til gagnatengingu með aðgangsstað að

þráðlausu neti. Þegar þú lokar gagnatengingunni er

þráðlausu staðarnetstengingunni einnig lokað. Einnig er

hægt að loka tengingunni handvirkt.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur

eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að tengjast

við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en

nokkur forrit geta hins vegar notað sama aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet þó svo að ótengda sniðið

sé í notkun. Mundu að fara að öllum viðeigandi

öryggisreglum þegar þú kemur á og notar þráðlausa

staðarnetstengingu.
Ef þú færir tækið til innan þráðlauss staðarnets og úr færi við

aðgangsstað þess finnur reikiaðgerðin sjálfkrafa nýjan

aðgangstað fyrir tækið þitt innan sama nets. Á meðan þú ert

í færi við aðgangsstaði sem tilheyra sama neti getur tækið

þitt haldið tengingunni við það net.

Ábending: Til að kanna MAC-vistfang (media access

control) sem ber kennsl á tækið þitt, t.d. til að stilla

MAC-vistfang tækisins þíns á beini fyrir þráðlaust

staðarnet, skaltu slá inn *#62209526# á

heimaskjánum. MAC-vistfangið birtist.