Nokia E71 - Pörun tækja

background image

Pörun tækja

Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið lykilorð (1-16 tölustafir)

og biðja notanda hins tækisins um að nota sama lykilorð.

Tæki sem ekki hafa notendaviðmót eru með fast lykilorð.

Aðeins þarf að slá inn lykilorðið þegar tækin eru tengd í fyrsta

skipti. Hægt er að heimila tenginguna að pöruninni lokinni.

Með því að para saman tæki og heimila tenginguna verður

fljótlegra að koma á tengingu þar sem ekki þarf að samþykkja

tenginguna á milli paraðra tækja í hvert skipti sem henni er

komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16 tölustafir.
1. Veldu

Valkostir

>

Nýtt parað tæki

. Tækið byrjar þá að

leita að Bluetooth-tækjum á svæðinu. Ef gögn hafa áður

verið send um Bluetooth birtist listi með fyrri

leitarniðurstöðum. Til að leita að fleiri Bluetooth-tækjum

velurðu

Fleiri tæki

.

2. Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn

lykilorðið. Slá verður inn sama lykilorð í hitt tækið.

3. Veldu

til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli

tækisins þíns og annars tækis, og

Nei

til ef þú vilt

staðfesta tenginguna í hvert skipti sem tækin reyna að

tengjast. Eftir pörunina er tækið vistað á síðu paraðra

tækja.

Til að gefa paraða tækinu gælunafn velurðu

Valkostir

>

Gefa stuttnefni

. Gælunafnið birtist eingöngu í þínu tæki.

Pörun er eytt með því að velja hana og svo

Valkostir

>

Eyða

. Til að eyða öllum pörunum velurðu

Valkostir

>

Eyða

öllum

. Ef tækið er tengt við annað tæki og pöruninni við það

er eytt, er pörunin fjarlægð strax og tengingunni er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast sjálfkrafa við þitt tæki

velurðu

Stilla sem heimilað

. Hægt er að koma á tengingu á

milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju þinnar. Ekki

þarf að samþykkja eða heimila tenginguna sérstaklega.

Notaðu þessa stöðu fyrir þín eigin tæki, líkt og höfuðtól eða

tölvu, og tæki þeirra sem þú þekkir og treystir. Ef þú vilt

samþykkja tengingarbeiðni frá hinu tækinu í hvert skipti

velurðu

Stilla sem óheimilað

.

Til að nota Bluetooth-hljóðaukahlut, t.d. handfrjálsan

Bluetooth-búnað eða höfuðtól, þarf að para tækið við

aukahlutinn. Lykilorð aukahlutarins og nánari upplýsingar er

að finna í notendahandbók hans. Kveiktu á

hljóðaukahlutnum til að tengjast við hann. Sumir

hljóðaukahlutir tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist

ekki skaltu opna flipann fyrir pöruð tæki, fletta að

aukahlutnum og velja

Valkostir

>

Tengjast við

hljóðtæki

.