Sending og móttaka gagna með
Bluetooth
1. Þegar kveikt er á Bluetooth í fyrsta skipti er beðið um að
tækinu sé gefið nafn. Gefðu tækinu þínu auðþekkjanlegt
nafn svo auðveldara verði að bera kennsl á það þegar
mörg Bluetooth-tæki eru í nágrenninu.
2. Veldu
Bluetooth
>
Kveikt
.
3. Veldu
Sýnileiki síma míns
>
Sýnilegur öllum
eða
Tilgreina tímabil
. Ef þú velur
Tilgreina tímabil
þarftu
að tilgreina þann tíma sem tækið þitt er sýnilegt öðrum.
Notendur annarra Bluetooth-tækja geta nú séð tækið og
nafnið sem var slegið inn.
4. Opnaðu forritið sem geymir hlutinn sem þú vilt senda.
5. Veldu hlutinn og síðan
Valkostir
>
Senda
>
Með
Bluetooth
. Tækið leitar að Bluetooth-tækjum innan
svæðisins og birtir þau í lista.
Ábending: Ef gögn hafa áður verið send um
Bluetooth birtist listi með fyrri leitarniðurstöðum.
Til að leita að fleiri Bluetooth-tækjum velurðu
Fleiri
tæki
.
6. Veldu tækið sem þú vilt tengjast við. Ef hitt tækið fer fram
á pörun áður en hægt er að flytja gögn er beðið um
aðgangskóða.
Þegar tengingu hefur verið komið á birtist textinn
Sendi
gögn
.
Mappan Sent í forritinu Skilaboð vistar ekki skilaboð sem hafa
verið send um Bluetooth.
Til að sækja gögn með Bluetooth velurðu
Bluetooth
>
Kveikt
og
Sýnileiki síma míns
>
Sýnilegur öllum
til að
sækja gögn frá ópöruðu tæki eða
Falinn
til að sækja
eingöngu gögn frá pöruðu tæki. Þegar gögn berast um
Bluetooth heyrist tónn og spurt er hvort taka eigi á móti
skilaboðunum sem innihalda gögnin, allt eftir stillingum á
sniðinu sem er virkt. Ef þú samþykkir eru skilaboðin sett í
innhólfsmöppuna í forritinu Skilaboð.
Ábending: Hægt er að nálgast skrárnar í tækinu eða á
minniskortinu með því að nota samhæfan aukahlut
sem styður FTP (til dæmis fartölvu).
Sjálfkrafa er slökkt á Bluetooth-tengingu eftir að gögn hafa
verið send eða móttekin. Aðeins er hægt að hafa tengingar
sem ekki er verið að nota í gangi ef tengingin er við PC Suite
eða aukabúnað, eins og höfuðtól.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
102