Nokia E71 - Flýtiniðurhal

background image

Flýtiniðurhal

HSDPA (High-speed downlink packet access, en einnig kallað

3.5G, táknað með

) er sérþjónusta í UMTS-símkerfum þar

sem boðið er upp á mjög hratt niðurhal. Þegar HSDPA-

stuðningur er virkur í tækinu og tækið er tengt UMTS-símkerfi

sem styður HSDPA er hægt að hlaða gögnum, svo sem

tölvupósti, og vefsíðum hraðar niður en ella. Virk HSDPA-

tenging er táknuð með . Táknin kunna að vera mismunandi

eftir svæðum.
Til að kveikja eða slökkva á HSDPA (háhraða

pakkagagnatenging) velurðu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Tenging

>

Pakkagögn

>

Háhraða

pakkagögn

. Sum farsímakerfi leyfa ekki símtöl þegar kveikt

er á HSDPA en í þeim tilfellum þarftu að slökkva á HSDPA til

að svara símtölum. Nánari upplýsingar fást hjá

símafyrirtækinu.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um gagnaþjónustu og

áskrift að henni.
HSDPA hefur aðeins áhrif á hraða við niðurhal en ekki á

gagnasendingar til símkerfisins (svo sem sendingar

skilaboða og tölvupósts).