Aukahlutir
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og
aukabúnað sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari
tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð
og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Sérstaklega getur notkun ósamþykktra rafhlaða eða
hleðslutækja valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra
áhættu í för með sér.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlegan aukabúnað
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukabúnaður er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.